Kannastu við að þvo uppáhaldspeysuna þína á röngu prógrammi og hún krumpaðist niður í hálfa stærð? Ekki örvænta því við erum með ráð sem reddar þessu á tíu mínútum.
Bjargaðu krumpuðu flíkinni þinni með þessum þrem einföldu skrefum:
- Settu hárnæringu í volgt vatn og leggðu flíkina þar ofan í og láttu liggja 5 mínútur. Passaðu bara að vatnið sé ekki of heitt.
- Legðu flíkina á handklæði og rúllaðu því upp til að flíkin þurrkist örlítið. Rúllaðu handklæðinu aftur út eftir nokkrar mínútur og leggðu þá flíkina á annað þurrt handklæði.
- Teygðu flíkína til í rétta stærð eins og þú vilt hafa hana og láttu þorna.