Sjáðu jólaborðin hjá Royal Copenhagen

Gun-Britt töfraði fram þetta borð. Hún hefur verið hárgreiðslukona frá …
Gun-Britt töfraði fram þetta borð. Hún hefur verið hárgreiðslukona frá því hún var 13 ára og er mikill fagurkeri. Innblásturinn kemur frá Tisvilde Strand, þar sem hún fer reglulega og dýfir sér í sjóinn. Borðið er skreytt með steinum og skeljum af ströndinni ásamt matarstellinu HAV og Element. Hér er vel tekið á móti gestum með ostrum og dry martini við hönd. mbl.is/© Jeppe Bjørn for Royal Copenhagen

Í 56. skiptið fær Royal Copenhagen til sín sérvalið lið af fólki úr ýmsum áttum til að hanna fyrir sig hátíðarborð fyrir jólin – og þetta er útkoman.

Þemað í ár var „hafið“ – en það hefur beintengingu í nýja matarstellið sem fyrirtækið sendi frá sér í byrjun árs og kallast HAV. En í ár voru t.d. gullsmiður, hárgreiðslukona og brimbrettamaður sem sáu um að dekka borðin, þá öll eftir sínu höfði.

Það má skoða borðin í verslun Royal Copenhagen á Amagertorv 6, allt fram til 31. desember.

mbl.is/© Jeppe Bjørn for Royal Copenhagen
mbl.is/© Jeppe Bjørn for Royal Copenhagen
Emilie Helmstedt hannaði þetta svakalega jólaborð þar sem hún sækir …
Emilie Helmstedt hannaði þetta svakalega jólaborð þar sem hún sækir innblástur sinn í kóralinn. Skreytingin dáleiðir mann nánast frá toppi til táar. mbl.is/© Jeppe Bjørn for Royal Copenhagen
mbl.is/© Jeppe Bjørn for Royal Copenhagen
Veitingahúsaeigendurnir Louise og Kenneth Toft-Hansen settu saman matarborð sem rúmar …
Veitingahúsaeigendurnir Louise og Kenneth Toft-Hansen settu saman matarborð sem rúmar 22 manns í sæti. Hördúkur er á borðinu og stellið er frá Royal Copenhagen sem fellur vel inn í mosann og grenið sem skreytir borðið. mbl.is/© Jeppe Bjørn for Royal Copenhagen
mbl.is/© Jeppe Bjørn for Royal Copenhagen
Það er atvinnumaður á brimbretti sem sýnir heldur betur öðruvísi …
Það er atvinnumaður á brimbretti sem sýnir heldur betur öðruvísi stemningu á jólaborðinu í ár. Í skottinu á bílnum má finna allt sem til þarf til að halda góða veislu og jólaserían setur punktinn yfir i-ið. mbl.is/© Jeppe Bjørn for Royal Copenhagen
mbl.is/© Jeppe Bjørn for Royal Copenhagen
Gullsmiðurinn Rebecca Elbek rekur sitt eigið verkstæði í Kaupmannahöfn. Hér …
Gullsmiðurinn Rebecca Elbek rekur sitt eigið verkstæði í Kaupmannahöfn. Hér notast hún við bláan og gylltan lit á borðinu sínu sem kemur stórkostlega út og í takt við þemað í ár. Takið eftir sandinum sem liggur ofan á borðplötunni. mbl.is/© Jeppe Bjørn for Royal Copenhagen
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert