Við getum kannski ekki 100% ábyrgst að barrið muni bara alls ekki falla af jólatrénu í ár en þessi skotheldu ráð munu í það minnsta hjálpa til.
Þeir sem skreyta með lifandi trjám heima um jólin kannast alveg pottþétt við þetta málefni – að finna barr út um allt hús og þá sérstaklega í kringum jólatréð. En ef þú vilt jólatré sem dugar lengur en önnur tré skaltu forðast að kaupa rauðgreni – veldu frekar normannsþin eða aðra trjátegund.
7 ráð til að halda barrinu á trénu:
- Leyfðu trénu að vera sem lengst í netinu og mögulegt er.
- Geymdu jólatréð á köldum og rökum stað til að viðhalda vatninu í barrinu á trénu.
- Skerið um 1—2 cm af jólatrésfætinum og stillið trénu í bala með vatni svo það fái nýtt vatn þegar þörf er á.
- Settu 1—2 kodimagnyl út í vatnið. Þökk sé virka efninu asetýlsalisýlsýru mun viðurinn haldast ferskur í lengri tíma. Töflurnar hafa sömu áhrif og litlu duftpokarnir sem fylgja oft afskornum blómvöndum.
- Bíddu eins lengi og þú getur með að bjóða trénu inn í stofu.
- Passið að jólatréð standi ekki upp við ofna eða arinn, þar sem tréð mun þorna fyrr en ella.
- Notið jólatrésfót með innbyggðum vatnsskammtara ef tréð á að standa ferskt og flott innandyra í meira en 14 daga.