Snjóboltar með núggati

Viltu koma í snjókast innandyra? Þá með þessum girnilegu snjóboltum.
Viltu koma í snjókast innandyra? Þá með þessum girnilegu snjóboltum. mbl.is/© Skovdalnordic.com

Ef við viljum tryggja hvít jól í ár, þá eru þessir snjóboltar að fara bjarga málunum. Lauflétt uppskrift sem þú munt elska að útbúa og ekki minnst njóta þess að borða.

Snjóboltar með núggati

  • Marsípan
  • Raspaður appelsínubörkur
  • Tréspjót
  • Núggat
  • 3-4 eggjahvítur
  • Flórsykur

Aðferð:

  1. Hnoðið marsípan og raspaða appelsínuberkinum saman.
  2. Skerið núggatið í litla bita og setjið einn bita inn í marsípanið sem þú rúllar upp í kúlu. Stingið trépinna inn í hverja kúlu.
  3. Pískið eggjahvíturnar léttar og bætið flórsykri saman við smátt og smátt þar til þú færð loftkennda marengsblöndu.
  4. Dýfið kúlunum í marengsinn og veltið upp úr sykri eða öðru sem hugurinn girnist.
  5. Þegar marengsinn hefur harðnað örlítið, þá veltir þú kúlunni upp úr sigtuðum flórsykri.
  6. Látið alveg storkna áður en borið fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert