Algjörlega skotheld uppskrift hér á ferð frá Gott í matinn. Að venju klikkar Helena Gunnars ekki og útkoman er hreint sælgæti.
Rjómalagaður ketókjúklingur með dijonsinnepi
4 skammtar
- 800 g úrbeinuð kjúklingalæri
- 1 stk. rauðlaukur
- 1 msk. timían (ferskt eða þurrkað)
- 1 dl hvítvín (má sleppa og nota bara kjúklingasoð)
- 2 dl kjúklingasoð (vatn og kjúklingakraftur)
- 2 dósir sýrður rjómi 36% frá Gott í matinn
- 2 msk. dijonsinnep (2-3 msk. og gott að nota gróft og venjulegt til helminga)
- salt og pipar
- smjör til steikingar
- fersk steinselja
Aðferð:
- Byrjið á að hita pönnu með dálitlu smjöri, kryddið kjúklinginn með salti og pipar og steikið báðum megin þar til vel brúnaður. Setjið á disk og lækkið aðeins hitann á pönnunni.
- Steikið laukinn í 2-3 mínútur eða þar til hann mýkist aðeins. Kryddið með timían, salti og pipar.
- Hellið hvítvíni og kjúklingasoði á pönnuna, skafið vel botninn og leyfið að sjóða í nokkrar mínútur.
- Bætið þá sýrða rjómanum út á ásamt dijonsinnepi. Leyfið aðeins að malla og smakkið til.
- Setjið að lokum kjúklinginn út í sósuna og leyfið að eldast í um það bil 10 mínútur við meðalhita.
- Stráið ferskri steinselju yfir að lokum og berið fram.
Höfundur uppskriftar er Helena Gunnarsdóttir.