Millimál eða morgunmatur – þá eru þessar múffur það besta sem þú getur boðið kroppnum upp á. Og það með góðri samvisku því þær innihalda kúrbít og engan sykur.
Gúrme múffur með pekanhnetum (8 stk.)
- 150 g möndlumjöl
- 2 tsk. lyftiduft
- 50 g pekanhnetur, grófhakkaðar (eða valhnetur)
- 1 þroskaður banani
- 3 egg
- 50 g kókosolía
- 125 g kúrbítur, rifinn niður
Aðerð:
- Blandið hveiti, lyftidufti og hnetum saman í skál.
- Maukið bananann og blandið honum saman við egg og kókosolíu. Blandið þessu því næst saman við þurrefnin og bætið kúrbítnum saman við. Blandið vel saman.
- Skiptið deiginu í 8 muffinsform og bakið við 200°C í 25 mínútur.