Þessi snilld er svo ljúffeng og matarmikil að hún dugar fyrir fjóra svanga maga – og er þá tilvalin sem léttur réttur að kvöldi. Hér er eggjakaka í allri sinni mynd með beikoni, kartöflum og pestó.
Eggjakaka sem þú borðar í kvöldmat
- 200 g kartöflur
- 6 egg
- 1 dl mjólk
- Salt og pipar
- 100 g beikon
- Gróft brauð
Gróft pestó:
- 50 g möndlur
- Fersk basilika
- 25 g parmesan
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C.
- Sjóðið kartöflurnar, skrælið og skerið í grófa bita.
- Pískið egg og mjólk saman og kryddið með salti og pipar. Steikið beikonið á pönnu og látið fituna leka af á eldhúspappír. Hellið því næst eggjablöndunni á pönnuna og dreifið kartöflunum yfir. Setjið inn í ofn í 20 mínútur.
- Pestó: Ristið möndlurnar létt á þurru pönnu. Saxið basilikuna og rífið niður parmesan-ostinn. Blandið öllu saman í skál.
- Toppið eggjakökuna með beikoni og grófu pestó. Berið fram með ristuðu góðu brauði.
Uppskrift: Emma Martiny