Hér bjóðum við upp á ljúffengt grænmetislasagne úr smiðju Hildar Rutar, þar sem grasker og spínat eru að dansa saman – en það er ekki oft sem við sjáum „butternut squash“ í matargerð.
Butternut squash er sérstakt afbrigði af graskeri, sætt á bragðið og minnir á sæta kartöflu að sögn Hildar. Eins er það næringarríkt og inniheldur mikið af góðum trefjum og A-vítamíni.
„Ég gerði þetta ofur ljúffenga graskers- og spínatlasagna í vikunni og það sló rækilega í gegn hjá fjölskyldumeðlimum. Börnin mín sem eru 8 ára og 1 árs, elskuðu þetta,“ segir Hildur Rut.
Grænmetislasagne með leynihráefni (fyrir 4-6)
- 1 butternut squash grasker, meðalstærð
- 9-12 lasagnaplötur
- 1 poki spínat
- 1 laukur
- 2-3 hvítlauksrif
- 500 g kotasæla
- 2 dl rifinn ferskur parmesan ostur
- 3 dl mozzarella ostur
- Ólífuolía
- Salt og pipar
- Cayenne pipar
- Múskat
Aðferð:
- Leggið lasagna plöturnar í bleyti (vatn) í 20-30 mínútur. Þá mýkjast þær og óþarfi að sjóða plöturnar áður en þið búið til lasagna.
- Skerið graskerið í litla bita. Veltið því upp úr ólífuolíu og saltið og piprið. Dreifið því í eldfast mót og bakið í 25-30 mínútur við 190°C.
- Steikjið lauk upp úr ólífuolíu. Þegar hann er búinn að mýkjast þá bætið þið við spínati og pressið hvítlauksrifin út í. Hellið því næst kotasælunni og parmesan ostinum út í og kryddið með múskati, cayenne pipar, salti og pipar. Hrærið öllu vel saman á vægum hita.
- Stappið graskerið þegar það er tilbúið.
- Finnið til eldfast mót, ég notaði 28x28. Smyrjið ólífuolíu í botninn og setjið til skiptis lasagnaplötur, grasker og spínatblönduna. Þið ættuð að ná þremur lögum ef þið notið álíka stórt mót og í þessari uppskrift.
- Stráið rifnum osti yfir og bakið í 20 mínútur við 190°C. Gott að bera fram með hvítlauksbrauði eða fersku salati.
mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir