Við tengjum örbylgjuofninn við það að hita upp afganga og poppa. En ofninn getur svo margt annað sem okkur óraði ekki fyrir – eins og t.d. þetta.
Þú þarft aldrei að gráta aftur í eldhúsinu
Hversu oft í mánuði eða viku ætli við stöndum með tárin í augunum út af lauk? Nú þarft þú aldrei að upplifa það aftur.
- Skerðu báða enda af lauknum.
- Settu laukinn inn í örbylgjuofn.
- Láttu ofninn hita laukinn í 30 sekúndur.
- Nú getur þú skorið laukinn að vild án þess að fella tár.
Hleypt egg verður leikur einn
Hver hefur ekki glímt við að útbúa hleypt egg í helgarbrönsinum sem hefur gengið erfiðlega? Í örbylgu verður þetta leikur einn.
- Þú skalt sjóða vatn.
- Helltu vatninu í skál sem þolir að fara inn í örbylgjuofn.
- Settu eggin og smá edik út í vatnið.
- Láttu örbylgjuofninn vinna sitt í 30 sekúndur. Snúðu þá eggjunum og leyfðu öðrum 20 sekúndum að líða í ofninum.
- Gjörðu svo vel og verði þér að góðu.
Þessi kona ætti að prófa lauk-trixið í örbylgjuofninum.
mbl.is/Colourbox