Það er ekki hægt að segja neitt nema gott um þessa uppskrift enda er hún bæði bragðgóð og spennandi. Það er Berglind Guðmunds á GRGS.is sem á heiðurinn að henni en hægeldað nautakjöt í indverskum búningi ætti að hljóma vel í allra eyru.
Hægeldað indverskt nautakarrý
- 2 msk. olía
- 1 dl hveiti
- salt og pipar
- 1 kg nautakjöt, t.d. nautafillet
- 2 msk. nautakraftur frá Oscar's
- 400 ml heitt vatn
- 1 dós kókosmjólk, t.d. frá Blue Dragon
- 500 g litlar kartöflur
- Safi úr 1 límónu
Karrýmauk frá grunni
- 1 rauðlaukur, gróflega skorinn
- 2-3 rauð chilí, gróflega söxuð
- 2 tsk. kóríanderkrydd
- 2 tsk. cumin (ekki kúmen)
- 1/2 tsk. kanill
- 1/2 tsk. hvítur pipar
- 4-6 hvítlauksrif
- 1 tsk. rifið engifer
- 3 tsk. fiskisósa (fish sauce frá Blue Dragon)
- 1 tsk. púðursykur
- 3-4 stilkar af fersku kóríander
- 1/2 tsk. salt
Annað
- Hrísgrjón
- ferskt kóríander, saxað
- límóna, skorin í litla báta
Aðferð:
- Blandið öllum hráefnum fyrir karrýmaukið saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Geymið.
- Setjið hveiti á disk og bætið salti og pipar saman við. Skerið kjötið í munnbita og veltið upp úr hveitinu.
- Hitið olíu á stórri pönnu eða í potti og brúnið kjötið (ágætt að skipta þessu niður í tvo hluta).
- Lækkið hitann og bætið karrýmaukinu saman við og steikið áfram í nokkrar mínútur.
- Setjið nautakraft í heitt vatn og hellið því saman við kjötið ásamt kókosmjólkinni.
- Lækkið hitann og hægeldið í 1 klst. og 30 mínútur. Bætið við nautasoði ef þörf er á.
- Skerið kartöflurnar niður til helminga eða í fernt og bætið saman við. Sjóðið áfram í 20-30 mínútur.
- Kreistið safa úr einni límónu og bætið saman við. Saxið kóríander og stráið yfir ásamt sneiðum af chilí.