Okkar ástsæli fótboltamaður Rúrik Gíslason, hóf samstarf við þekktasta kristalsframleiðanda Danmerkur og fyrstu vörurnar voru að líta dagsins ljós.
Við sögðum frá því fyrr á árinu að Rúrik Gíslason væri kominn í samstarf við danska hönnuðinn Frederik Bagger, sem hannar þau allra fallegustu kristalsglös sem finnast í dag. En eins og flestir vita er Rúrik einn af eigendum ginfyrirtækisins Glacier Gin.
Afurð þessara tveggja vörumerkja var afhjúpuð nú á dögunum og útkoman er stórkostleg. Tvö glös sem setja svo sannarlega stemninguna á borðið! Glösin eru á fæti og kallast „Sapphire Madame“ og „Sapphire Monsieur“ – og koma í jökla-blágráum litatón.
Glösin eru væntanleg til landsins en í augnablikinu er hægt að leggja inn forpantanir — það er Epal sem er endursöluaðili Frederik Bagger hér á landi.