Hér erum við með hreinræktaða hólí mólí-uppskrift en það er gífuryrði sem við notum yfir sérlega girnilegar uppskriftir. Þessi dásemd kemur úr smiðju Berglindar Guðmunds á GRGS.is og við hvetjum ykkur til að prófa.
Stökkur nachoskjúklingaborgari
- 700 g kjúklingalæri frá Rose Poultry
- 60 g hveiti
- 60 g nachosflögur, t.d. frá Mission
- 40 g brauðrasp, mæli með Panko
- 2 tsk chilikrydd
- 1 tsk kummín
- 1 tsk salt
- ½ tsk paprikukrydd
- ½ tsk hvítlauksduft
- pipar
- 1 egg
- 60 ml safi úr jalapenokrukku
- olía
- salt og pipar
Annað
- Hamborgarabrauð
- guacamole
- rauðlaukur
- salat
- Heinz-majones
Leiðbeiningar
- Setjið hveiti í eina skál.
- Látið egg og safa frá jalapeno í aðra skál og hrærið saman.
- Í þá þriðju setjið þið muldar nachosflögur, brauðrasp, chilíkrydd, kummín, salt, paprikukrydd, hvítlauksduft og pipar og blandið vel saman.
- Dýfið kjúklingalæri fyrst í hveiti, þá eggjablönduna og að lokum í nachosmulninginn. Setjið á bökunarplötu með smjörpappír og dreypið smá af ólífuolíu yfir kjúklinginn. Endurtakið með hin kjúklingalærin.
- Eldið í 210°C heitum ofni í 25-30 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður.
- Hitið hamborgarabrauð og smyrjið með ríflegu magni af majonesi. Setjið meðlæti að eigin vali á brauðið og endið með kjúklingnum.