Það jafnast fátt á við gott taco, en þessi veisla er með þeim girnilegri sem við höfum smakkað. Uppskriftin kemur úr smiðju Hildar Rutar sem er nýr penni á Trendnet, og deildi þessari uppskrift þar nú á dögunum.
Í uppskriftinni eru risarækjur djúpsteiktar í tempura-deigi sem er einfaldara í framreiðslu en við höldum, ásamt sriracha-majónesi og fersku salati. Gjörið svo vel!
Taco-veisla sem þú vilt alls ekki missa af (fyrir tvo, 3 taco á mann)
- 6 litlar tortillur, soft taco (ég nota frá Santa maria sem fæst í Hagkaup)
- 18 risarækjur, hráar
- 1-2 hvítlauksrif, pressuð
- Chili-flögur
- Salt og pipar
- 1-2 msk. ólífuolía
- Olía til djúpsteikingar
Tempura-deig
- 130 g hveiti + smá auka
- ¼ tsk. matarsódi
- 1 eggjarauða
- 220 ml sódavatn, mjög kalt
Kínakálsalat
- Kínakál, 4 blöð
- 2 tómatar
- 2-3 msk. rauðlaukur
- ½-1 rautt chili
- 1-2 avókadó
- Safi úr ½ lime
- Salt og pipar
Sriracha-sósa
- 4 msk. majónes (t.d. Hellmanns)
- 1 tsk. sriracha-sósa
- 1-2 msk. ferskur kóríander, smátt saxað
- Safi úr ½ lime
Toppa með ferskum kóríander, eftir smekk
Aðferð:
- Blandið saman í skál risarækjum, ólífuolíu, hvítlauksrifi, chili flögum, salti og pipar.
- Því næst gerið þið tempura-deigið. Blandið saman hveiti og matarsóda í skál. Hrærið saman eggjarauðu og sódavatni og blandið saman við hveitiblönduna. Saltið og piprið eftir smekk. Haldið tempura-blöndunni kaldri því þá verður deigið stökkara og betra.
- Hellið olíu í rúmgóðan pott þannig að olían þeki risarækjurnar. Hitið olíuna. Gott ráð er að dýfa tréskafti ofan í, t.d. á trésleikju, og ef það sýður (bubblar) þá er olían tilbúin.
- Hellið hveiti á disk og veltið risarækjunum upp úr því. Að því loknu veltið þeim upp úr tempura-deiginu og steikið upp úr olíunni þar til rækjurnar eru orðnar gylltar og stökkar. Gott er að nota stáltangir í þetta verk. Það tekur í kringum 2 mínútur að fullelda rækjurnar.
- Steikið tortillurnar upp úr smá olíu og fyllið þær með salatinu, risarækjunum, sósunni og toppið svo með kóríander.
Kínakálsalat
- Skerið kínakál, tómata, rauðlauk, avókadó og chili smátt. Kreistið safa úr lime og saltið og piprið. Blandið öllu vel saman.
Sriracha-sósa
- Blandið saman majónesi, sriracha-sósu, kóríander og safa úr lime.
Risarækjur og sriracha-sósa eru sprengja fyrir bragðlaukana.
mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir