Litlu páskaeggin frá Royal Copenhagen eru mætt og hvert öðru fallegra. Blómleg munstur og vorlegir litir eru allsráðandi með hækkandi sól.
Við sjáum heilan blómagarð í ár í vorlínu Royal Copenhagen — sem gleður okkur með litlu páskaeggjunum sínum sem munu skreyta hvert það rými þar sem þau lenda. Litirnir eru bjartir og mjúkir og munstrin færa okkur nær náttúrunni. Það sem einkennir eggin í ár er að sum þeirra prýðir blómamunstur í yfirstærð.
Annað nýtt frá Royal Copenhagen er blómavasi og box, en boxið er eins og stórt egg sem hægt er að opna og þá geyma sykraða mola eða önnur leyndarmál.