Þar sem páskarnir eru handan við hornið ætlum við í samstarfi við Epal, að gefa þremur heppnum páskaegg frá lakkrískónginum Johan Bülow.
Páskaeggin koma í tveimur útfærslum, þá ýmist með stökku karamellubragði þar sem mjúkur lakkrísinn er dulbúinn í silfur marmarakúlum sem samanstanda af lakkrís og karamellu súkkulaði - með litlum sjávarsaltsflögum og hráu lakkrísdufti sem gefa sætleikann og skapa jafnvægi í blönduna.
Hin bragðtegundin er mangó og vanillubragð, þar sem ferskleikinn liggur í hægsoðnum lakkrís sem hjúpaður er hvítu súkkulaði. Ferskt mangobragðið gefur síðan dásamlegan keim á móti sætri vanillunni.
Við erum ekkert að tala um nein venjuleg páskaegg, heldur páskaegg fyrir sannkallaða sælkera.
Svona tekur þú þátt
Til að eiga möguleika á að vinna páskaegg frá Johan Bülow, þarftu að fylgja okkur á Instagram HÉR. Skráðu þig í pottinn með því að skrifa ummæli við myndina sem er þar inni, og því oftar sem þú skráir þig, því meiri líkur eru á að þú verðir dregin/n út. Við drögum út 3 heppna aðila, fimmtudaginn 2. apríl. Megi heppnin vera með þér!