Það er á þessum tímum sem við eigum að gera vel við okkur. Hér er súkkulaðibomba úr smiðju Hildar Rutar sem innihalda Þrista lakkríssúkkulaði – það þarf varla að segja meira.
Hildur tók þessar dásamlegu „chewy“ brownies með sér í matarboð þar sem þær slógu rækilega í gegn. En brúnkurnar eru fullkomnar með ís eða þeyttum rjóma.
Kakan sem sló í gegn
- 200 g smjör
- 5 dl sykur
- 3 msk kakó frá Kötlu
- 1 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. salt
- 1 msk. vanilludropar frá Kötlu
- 4 egg
- 3,5 dl hveiti
- 1 poki þristur
Aðferð:
- Bræðið smjörið á vægum hita og hrærið sykrinum saman við. Passið að láta ekki bullsjóða.
- Hellið smjörblöndunni í skál og hrærið kakói, lyftidufti, salti og vanilldropum saman við. Mér finnst gott að nota hrærivélina.
- Hærið eggjunum saman við og að lokum hellið hveitinu út í og blandið vel saman.
- Hellið í eldfast form með bökunarpappír. Ég notaði 28×28.
- Skerið þrista í bita og dreifið jafnt yfir kökuna.
- Bakið í um 30 mínútur við 180°C. Kakan á að vera frekar blaut í miðjunni eða „chewy“.
- - -
Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita...
Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl
mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir