Við köllum þennan rétt einfaldan og ómótstæðilegan því hann er svo bragðgóður að maður hreinlega gæti grátið. Íslendingar elska sinn Mexíkó-mat og þessi uppskrift stendur fyrir sínu. Það er engin önnur en Linda Ben sem á þessa uppskrift skuldlaust.
Einfalt og fljótlegt kjúklinga-fajitas
- 4 útbeinuð kjúklinglæri
- 1 rauð paprika
- 1 gul paprika
- 1 rauðlaukur
- Taco-kryddblanda
- Ferskt kóríander
- Lime
- 6 stk. litlar vefjur
- Guacamole
- Sýrður rjómi
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 200°C.
- Skerið kjúklinginn smátt niður, setjið vel af taco:kryddblöndu yfir og raðið á ofnplötu.
- Skerið laukinn og paprikurnar í sneiðar, setjið á ofnplötuna, hrærið allt vel saman og bakið inn í ofni í 20-30 mín. eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn (tími fer eftir stærð kjúklingabitanna).
- Setjið vefjur í álpappír og hitið þær inn í ofni á meðan kjúklingurinn eldast.
- Berið fram með guacamole, sýrðum rjóma, lime og fersku kóríander.
Guacamole
- 2 avocadó
- 1 hvítlauksrif
- 1 tómatur
- Salt og pipar
- Safi úr ½ lime
Aðferð:
- Stappið avocadóið með gaffli, pressið hvítlauksrifið í gegnum hvítlaukspressu út í avocadó stöppuna, skerið tómatinn smátt niður og bætið út í.
- Blandið öllu vel saman, kreystið ½ lime út í og kryddið til með salti og pipar eftir smekk.
- - -
Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita...
Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl.