Við gætum skoðað eldhús og borðstofur allan daginn ef út í það er farið því við fáum aldrei leið á fallegum rýmum þar sem við njótum okkar með mat og drykk. Hér eru fimm fagrar borðstofur.
Litríkt og lifandi! Módernískur stíll á þessari borðstofu þar sem hinn heimsfrægi Y-stóll skartar regnbogans litum við borðið.
mbl.is/Nexus Designs
Eins látlaust og hugsast getur – en hér er unnið með grunnlitina hvítan, svartan og marmara.
mbl.is/Norbert Tukaj
Hér má sjá stílhreina borðstofu með risastóru listaverki á veggnum, ásamt loftljósi sem stelur allri athyglinni og verður miðpunkturinn í rýminu.
mbl.is/Sharyn Cairns
Hver myndi ekki vilja eiga þessa borðstofu. Þar sem himinháir gluggar hleypa birtunni inn og gengið er út í garð á góðviðrisdögum. Það er líka alltaf ákveðin stemning í hringlaga borðum, og hér eru bleikir Gubi stólar sem umlykja borðið. Takið einnig eftir ljósinu – það líkist einna helst vínberjaklasa.
mbl.is/Sharyn Cairns