Hinum eina sanna Snoop Dogg er margt til lista lagt og kannski ekki allir sem vita að hann á heimsmetið í að blanda stærsta gin & tónik-drykk veraldar.
Og nú hyggur hann á vínframleiðslu í samstarfi við ástralska vínframleiðandann 19 Crimes. Um er að ræða rauðvín sem kallast Snoop Cali Red og er 65% petite syrah, 30% zinfandel og 5% merlot.
Vínið er væntanlegt í verslanir á næstunni og við spáum því að það verði gríðarlega vinsælt eins og allt annað sem Snoop kemur nálægt.
Heimild: Food & Wine
View this post on InstagramIn my @djkhaled voice another 1
A post shared by snoopdogg (@snoopdogg) on May 27, 2018 at 11:10am PDT