Nú duga ekkert nema lekkerheit og hér erum við með kjúklinaspjót frá spænsku gyðjunni okkar henni Maríu Gomez á Paz.is og ef einhver kanna að galdra fram guðdómlegar freystingar þá er það hún.
„Pinchos de pollo eða kjúklinga grillspjót minnir mig svo mikið á spænska æsku. Júlí og ágúst eru miklir fiesta mánuðir á Spáni, en fiesta þýðir hátíð," segir María um þennan rétt en hann er óheyrilega girnilegur og við hvetjum ykkur til að prófa.
Grillaðir kjúklinga Pinchos með Alioli
Kjúklingaspjót
- 1000-1200 gr úrbeinuð læri og bringur blandað saman (1 bakki bringur og 1 bakki úrbeinað lærakjöt)
- 1 dl Caj P BBQ olía Original
- 1 dl Filippo Berio Extra Virgin ólífuolía
- 1 msk. síróp að eigin vali, ég notaði Agave
- 1 msk. nýkreistur sítrónusafi
- 2 tsk. fínt salt
- 1/2 tsk. svartur pipar
- 1 geiralaus hvítlaukur marin eða 4 hvítlauksrif
- 1 tsk. hvítlauksduft garlic powder (ath ekki hvítlaukssalt)
- 2 tsk. laukduft onion powder
- 1 tsk. paprikuduft
- 1/2 tsk. kóríander malað (ég notaði Pottagaldra, það er eins og brúnt krydd en ekki þurrkuð kryddjurt)
- 1 tsk. tímian þurrkað
- 1 tsk. oregano þurrkað
- 1 tsk. turmerik
- 1 msk. cumin (ekki sama og Kúmen eins og í kringlum)
- 1/2 tsk. cayenne pipar
Alioli sósa
- 2 1/2 dl sólblómaolía eða önnur bragðlítil olía
- 2 hvítlauksrif eða 1/2 geiralaus hvítlaukur
- 1 msk. nýkreystur sítrónusafi
- 1 egg
- klípa af salti
Aðferð
Kjúklingaspjót
- Byrjið á að setja olíurnar í skál og hræra þeim vel saman. Athugið að það þarf að hrista mjög vel Cai P olíuna
- Bætið næst sírópinu og sítrónusafanum við og hrærið saman með písk
- Svo er að setja öll kryddin út í og hræra vel saman
- Skerið næst hverja bringu í 4 bita þversum, ekki skera í litla gúllasbita því þá verður það of þurrt í grillun
- Leyfið lærakjötinu að vera eins og það er nema ef bitar eru mjög stórir skerið það þá í tvennt
- Setjið nú kjúklingin út í marineringuna og hrærið mjög vel saman
- Setjið svo í kæli með álpappír eða filmu yfir í minnst 3 klst, því lengur því betra
- Að 3 tímum liðnum eru bitarnir þræddir upp á grillpinna og gott er að hafa smá paprikubita á milli en má sleppa
- Grillið svo spjótin í um 30 mínútur, best að gera fyrst niðri yfir eldinum og setja svo á efri hæðina í lokuðu grillinu til að steikist vel í gegn án þess að verði þurrt kjötið
Alioli sósa
- Inn á Instagram getið þið séð í highlights aðferðina við að gera alioli, mæli með að þið farið þar inn en það þarf að eiga töfrasprota til að geta gert hana
- Setjið í djúpt ílát allt sem á að vera í sósunni, skerið bara hvítlaukinn smátt ofan í þarf ekki að merja
- setjið næst töfrasprotann alveg á botninn á ílátinu og ekki hreyfa hann neitt meðan þið byrjið að þeyta
- Haldið töfrasprotanum alveg kyrrum og notið meðalhraða. Þið sjáið fljótt hvernig byrjar að myndast hvítt fallega glansandi mayones
- Þegar er örlítil olía efst en restin er orðin hvít megið þið ýta sprotanum upp og niður í smá stund
- Setjið svo í skál og kælið en gott er að gera sósuna um leið og marineringuna og hafa í kæli jafn lengi
- Berið hana svo fram samhliða grillspjótunum
Punktar
Oft er notuð ólivuolía á Spáni í alioli en þá mæli ég með bragðmildri ólífuolíu, alls ekki extra virgin. Í grillspjótinn mæli ég með að þið sleppið akkurat engu af kryddunum og séuð ekki að bæta í þau kryddum heldur, marineringin var alveg fullkomin svona og reynið að fara því 100 % eftir uppskriftinni. Uppskriftin af þessum grillmat er einstaklega góð og mjög svo einföld.