Hvað er betra en grillað lambakjöt með geggjaðri sósu? Hér erum við með uppskrift frá Berglindi Hreiðars á Gotteri.is sem er alveg upp á tíu.
Grillað lambafilé með portobello-sósu
Fyrir 4-6 manns
Portobello-sósa
- 250 g portobello-sveppir
- 30 g smjör
- 650 ml rjómi
- 250 ml vatn
- 1 pk. TORO-sveppasósa
- 1 pk. TORO-rauðvínssósa
- 3 msk. rifinn parmesanostur
- 1 tsk. saxað garðablóðberg (timian)
- 1 msk. kjötkraftur
- Salt og pipar eftir smekk
- Skerið sveppina niður og steikið upp úr smjöri þar til þeir brúnast og mýkjast, kryddið með salti og pipar.
- Hellið rjómanum og vatninu yfir sveppina og pískið súpuduftin saman við og leyfið að malla nokkrar mínútur.
- Bragðbætið með parmesan-osti og garðablóðbergi.
- Kryddið til með kjötkrafti, salti og pipar og leyfið sósunni að malla aðeins áfram.
Lambafilé
- 3-5 lambafilé (eftir stærð)
- BEZT á lambið krydd
- Ólífuolía
- Leyfið lambakjötinu að standa við stofuhita í um klukkustund áður en þið grillið það.
- Berið ólífuolíu á hvert lambafilé og kryddið vel með BEZT á lambið kryddi.
- Grillið á heitu grilli þar til kjötið hefur náð 50-56° í kjarnhita (eftir því hversu vel steikt þið viljið hafa það).
- Leyfið kjötinu svo að hvíla í nokkrar mínútur áður en þið skerið það.
Salat
- Blandað salat (1 poki)
- Hindber, bláber, brómber
- Fetaostur
- Öllu blandað saman í skál.
Fyllt jalapeno
- 4-6 jalapeno
- Rjómaostur (sú bragðtegund sem ykkur þykir best)
- Rifinn parmesanostur
- Skerið jalapeno til helminga og fræhreinsið.
- Fyllið með rjómaosti og stráið parmesanosti yfir.
- Grillið eða bakið í ofni þar til osturinn fer að gyllast.
Kartöflur
- 3-5 bökunarkartöflur
- Smjör
- Salt og pipar
- Sjóðið kartöflunar þar til þær eru nánast soðnar í gegn.
- Skerið þær þá í sundur og grillið helmingana á grillinu í nokkrar mínútur. Gott er að bera matarolíu á grillgrindina fyrst.
- Smyrjið síðan með vel af smjöri, saltið og piprið.
Ljósmynd/Berglind Hreiðars