Ofnbakaður kjúklingaréttur fyrir alla fjölskylduna

Girnilegur kjúklingaréttur fyrir alla fjölskylduna.
Girnilegur kjúklingaréttur fyrir alla fjölskylduna. mbl.is/Colourbox

Hér bjóðum við upp á mildan kjúklingarétt þar sem sítróna leikur stórt hlutverk. Þetta er réttur sem öll fjölskyldan mun elska, og þá ekki síst kokkurinn á heimilinu þar sem lítið er um uppvask.

Ofnbakaður kjúklingaréttur fyrir alla fjölskylduna (fyrir 4)

  • 4 kjúklingalæri frá Ali
  • Salt og pipar
  • 2 sítrónur
  • 2 msk. ólífuolía
  • 1 kg kartöflur
  • 1 msk. þurrkað oregano
  • 360 g grænar ólífur

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 200°C.
  2. Þurrkið kjúklingalærin með eldhúsrúllu og kryddið með salti og pipar. Skerið sítrónurnar til helminga.
  3. Hitið olíu á stórri pönnu sem má fara inn í ofn. Steikið sítrónurnar á skurðarhliðinni þar til gylltar.
  4. Takið sítrónurnar af pönnunni og setjið kjúklinginn út á.  Brúnið vel á báðum hliðum og takið því næst af pönnunni.
  5. Skerið kartöflurnar í grófa teninga og steikið á pönnunni og kryddið með salti, pipar og oreganó. Veltið á pönnunni og steikið í sirka 5 mínútur (má jafnvel bæta aðeins við ólífuolíuna). Hellið vökvanum frá ólífunum og setjið út á pönnuna. Því næst kemur kjúklingurinn og kartöflurnar.
  6. Pressið safann úr sítrónunum yfir pönnuna og leggið sítrónurnar á pönnuna.
  7. Setjið inn í ofn í 30 mínútur eða þar til kjúklingurinn er stökkur og fulleldaður.
  8. Skreytið með steinselju og berið fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert