Þessar girnilegu mexíkósku tacos eru með þeim betri sem við höfum smakkað, og ekki skemmir fyrir hversu litríkar og sumarlegar þær eru á að líta. Uppskriftin kemur frá Snorra hjá Matur og myndir og tekur rétt um 20 mínútur frá byrjun til enda.
Taco sem keyrir sumarið í gang (fyrir 2)
- 300 g mexíkópylsur (sterkar) frá Ali
- 8 litlar tortillur / t.d. white corn tortilla frá Old El Paso
- 1 avocado
- ¼ lítill rauðlaukur
- 1 hvítlauksrif
- 6 g kóríander
- 125 g smátómatar
- 1 límóna
- 2 radísur
- 50 g íssalat eða Romaine
- 50 ml japanskt majónes
- 50 ml sýrður rjómi
- 30 ml salsa sósa
- ½ tsk. hvítlauksduft
- Hot sauce eftir smekk / t.d. Cholula green pepper
Aðferð:
- Stillið ofn á 150°C með yfir og undir hita.
- Hrærið saman majónes, sýrðan rjóma, salsa sósu og hvítlauksduft. Smakkið til með salti og geymið svo í kæli.
- Setjið Mexíkópylsur í matvinnsluvél og látið vélina ganga í stuttum hrynum þar til áferðin á pylsunum er svipuð og hakki.
- Skerið tómata og avocado í bita, saxið rauðlauk eftir smekk, pressið hvítlauksrif og saxið kóríander. Setjið allt saman í skál ásamt smá skvettu af ólífuolíu og rífið límónubörk saman við. Smakkið til með salti.
- Sneiðið salat í þunnar ræmur og setjið í skál. Sneiðið radísur mjög þunnt og setjið í skál með smá köldu vatni.
- Vefjið tortilla vefjum inn í álpappír og hitið í ofni þar til vefjurnar eru mjúkar og heitar.
- Hitið smá olíu á pönnu við meðalháan hita og steikið hökkuðu pylsunar í nokkrar mín þar til kjötið er farið að brúnast fallega.
- Raðið sósu, salati, kjöti og avocado salsa í tortilla vefjurnar. Toppið með radísum og ykkar uppáhalds hot sauce.