Ef það er einhver sem kann að skemmta sér og öðrum, þá er það Chrissy Teigen. Hún deildi uppskrift að kokteil sem fylgjendur hennar kalla „sumarið endalausa“ í glasi.
Ef þú ert ekki mikið fyrir vodka getur þú skipt því út fyrir tequila eða hvítvín – eða sleppt víninu ef því er að skipta.
Sumardrykkur að hætti Chrissy Teigen (fyrir 4)
- 60 ml nýkreistur lime eða sítrónu safi
- 50 g sykur
- 1 lítri vatnsmelóna skorin niður, án steina
- 225 ml mjög kalt (helst frosið) vodka
- Sítrónu eða lime sneiðar og mynta til skreytingar
Aðferð:
- Blandið saman lime safa og sykri í litla skál og hrærið þar til sykurinn leysist upp.
- Skerið vatnsmelónuna í bita og raðið í mót (22x33 cm) og hellið sykur-lime blöndunni yfir. Setjið í frysti í það minnsta 4 tíma eða sólarhring.
- Setjið frosnu melónuna í blandara og bætið vodka saman við – blandið saman.
- Hellið í fjögur glös og skreytið með lime og myntu.
Drykkurinn sem Chrissy Teigen er að gera alla vitlausa með á Instagram.
mbl.is/Instagram_cravingsbychrissyteigen