Ef þú ert einhvern tímann í vafa um hvað þú átt að gera við baðherbergið, þá er orðið sem þú leitar að – „bleikt“! Þeir sem eru í framkvæmdahugleiðingum eða vantar lít í lífið ættu að skoða þetta aðeins nánar.
Hér gætum við átt við mikilvægt húsráð fyrir heimilið, því baðherbergið er jú eitt af þeim rýmum sem við notum hvað mest og viljum hafa eins notalegt og mögulegt er. Sumum þykir eflaust algjört brjálæði að henda sér út í bleikan lit inni á baðherbergi, en eftir að hafa skoðað meðfylgjandi myndir gæti þetta verið næsta verkefni sem við setjum á listann.