Hér er gómsæt eplabaka sem er alltaf jafn vinsæl hjá börnum og fullorðnum. Hildur Rut á heiðurinn af bökunni og notar Dumle-karamellur sem setja punktinn yfir i-ið.
Hildur Rut segir bökuna fullkomna í sumarbústaðarferðum og segist þá mæla öll þurrefnin heima og taka með í boxi eða poka, og þá taki enga stund að útbúa bökuna í sveitinni.
Eplabökugóðgæti með karamellu
- 3 epli (ég notaði jonagold)
- 2-3 msk. kanilsykur, eða eftir smekk
- 80 g hveiti
- 70 g tröllahafrar
- 100 g sykur
- 100 g smjör við stofuhita
- 10 stk Dumle-karamellur
Aðferð:
- Skrælið eplin og skerið í sneiðar.
- Dreifið eplasneiðunum í eldfast form og stráið kanilsykrinum yfir. Veltið eplasneiðunum vel upp úr kanilsykrinum.
- Blandið saman hveiti, tröllahöfrum og sykri í skál. Bætið svo smjörinu út í og hnoðið með höndunum.
- Dreifið deiginu yfir eplin.
- Skerið Dumle karamellurnar í bita. Ég sker eina karamellu í fjóra bita. Dreifið þeim yfir deigið.
- Bakið í 30-35 mínútur við 190°C. Frábært að bera bökuna fram með þeyttum rjóma eða vanilluís.
mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir