Ómótstæðileg bleikja í sparifötunum

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Hér erum við með algjörlega ómótstæðilega bleikju úr smiðju Berglindar Hreiðars á Gotteri.is.

 

Ofnbökuð bleikja í sparifötunum

Fyrir um 5-6 manns

Bleikja og bakaður aspas

  • 3 bleikjuflök (um 900 g)
  • 1 búnt ferskur aspas
  • 130 g brauðrasp
  • 60 g rifinn Goðdala Reykir ostur
  • 1 msk. saxað timian
  • 1 msk. söxuð steinselja
  • 2 rifnir hvítlauksgeirar
  • 100 g brætt smjör
  • Olía, salt og pipar
  • Sítrónubátar

Aðferð:

  1. Penslið bæði bleikjuflökin og aspasinn með ólífuolíu, saltið, piprið og leggið á bökunarpappír í ofnskúffu (ég notaði tvær skúffur, aðra fyrir fisk og hina fyrir aspas).
  2. Hitið ofninn í 200°C og útbúið brauðraspinn á meðan.
  3. Blandið brauðrasp, rifnum osti, kryddum, hvítlauk og bræddu smjöri saman í skál með höndunum þar til brauðraspurinn hefur drukkið í sig smjörið.
  4. Skiptið blöndunni þá jafnt yfir bleikjuflökin og restinni yfir aspasinn.
  5. Spreyið með matarolíuspreyi og bakið í heitum ofninum í um 15-20 mínútur.

Kartöflur

  • 3 stórar bökunarkartöflur
  • Salt, pipar, hvítlauksduft, timian
  • Ólífuolía

Aðferð:

  1. Flysjið kartöflurnar og skerið í litla teninga (um 1 x 1 sm)
  2. Steikið þær upp úr vel af olíu á meðalheitri pönnu í um 30 mínútur eða þar til þær eru mjúkar í gegn. Gott að krydda þær til eftir smekk og snúa reglulega til að þær festist ekki við pönnuna, bætið við olíu ef þurfa þykir.

Köld sósa

  • 1 dós 18% sýrður rjómi frá Gott í matinn
  • Safi úr ½ límónu
  • 2 msk. saxaður kóríander
  • 1 rifið hvítlauksrif

Aðferð:

  1. Allt sett saman í skál og hrært saman, borið fram með fiskinum.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert