Hildur Rut skálar við okkur í helgarkokteil sem bragðast eins og sælgæti og segir kokteilinn hættulega góðan. Passoa, romm, trönuberjasafi, klaki og tyrkisk peber er mjög góð blanda að hennar sögn og við tökum hana á orðinu!
Helgarkokteillinn er eins og sælgæti (fyrir 1)
- 3 cl Passoa
- 3 cl romm (ég notaði Brugal blanco supremo)
- 1 dl trönuberjasafi
- 2 dl mulinn klaki
- ½ poki Tyrkisk peber-brjóstsykur (dugar í nokkra kokteila)
- ástríðuávöxtur (dugar í nokkra kokteila)
Aðferð:
- Byrjið á því að mylja tyrkisk peber í matvinnsluvél eða með því að setja í poka og renna kökukefli yfir.
- Hellið brjóstsykursmulningnum á disk og hellið vatni í skál. Skreytið glas með því að dýfa því fyrst í vatnið og láta það svo leka af í nokkrar sekúndur. Dýfið svo glasinu í brjóstsykurinn og þekið brúnina á því með Tyrkisk peber.
- Hellið passoa, rommi, trönuberjasafa og klaka í kokteilhristara og hristið vel í ca 15 sekúndur.
- Hellið í skreytta glasið og skreytið með einni sneið af ástríðuávexti.
mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir