Allir avókadóunnendur þarna úti takið eftir! Ekki láta góðan ávöxt fara til spillis þó að þú klárir innihaldið – því við viljum umfram allt sporna við matarsóun og endurnýta allt sem hugsast getur.
Matarsóunar-expertinn Emilie Vanpoperinghe hefur varpað fram sex leiðum til að nýta allan avókadóávöxtinn án þess að neitt fari til spillis.
Ræktaðu avókadó
Þú getur ræktað nýja avókadóplöntu á mjög einfaldan máta. Eina sem til þarf eru þrír tannstönglar, vatnsglas og gluggakista. Stingdu tannstönglum í avókadósteininn og láttu hann hanga á glasbrúninni þannig að botninn á steininum liggi í vatninu. Stillið glasinu í birtu út í glugga. Eftir nokkrar vikur muntu sjá stöngla byrja að vaxa og þegar stöngullinn nær 15 cm hæð skaltu klippa hann til og leyfa honum að vaxa á ný. Þegar stöngullinn nær aftur 15 cm er tími til að setja plöntuna í næringarríka mold og leyfa henni að vaxa að fullu.
Fáðu þér te
Ef smoothie er ekki að þínu skapi, þá skaltu prófa að sjóða avókadósteininn í fimm mínútur þar til hann mýkist. Skerðu hann í þunnar sneiðar og settu út í sjóðandi vatn í fimm mínútur. Síaðu vatnið og helltu því í bolla með smávegis af hunangi.
Avókadóduft
Þurrkaðu avókadósteininn inni í ofni á lágum hita í nokkra klukkutíma eða settu hann út í sólríkan glugga í 1-2 daga. Þegar steinninn hefur þornað upp, settu hann þá í matvinnsluvél. Notaðu svo duftið í smoothie eða í brauðbakstur og út á salatið þitt.
Notaðu avókadó undir blómafræ
Avókadóhýðið er fullkomið undir blómafræ. Settu mold í hýðið og ræktaðu blóm og grænmeti á náttúrulegan máta.
Settu hýðið í baðið
Viltu lúxus? Skelltu þá avókadóhýðinu út í baðið og nuddaðu það upp úr vatninu. Þannig fyllist baðkarið af næringarríkri olíu sem mun gera húðina mjúka og fína.