Það hefur ekki farið framhjá neinum að haustið hefur bankað á dyrnar og þá jafnast fátt á við bragðgóða tómatsúpu með ferskum mozzarella og basilíku. Og þessi er einstaklega góð!
Súpan er í boði Hildar Rutar sem segist alltaf sjúk í súpur á haustin. „Þessi tómatsúpa inniheldur gulrætur sem gerir súpuna einstaklega góða. Toppurinn yfir i-ið er að rífa ferskan mozzarella og dreifa yfir súpuna rétt áður en þið borðið hana. Svakalega gott. Ég kaupi minn mozzarella í Costco, hann er mjúkur og mjög bragðgóður þar. Mæli með að bera þetta fram með góðu brauði.“
Yndisaukandi tómatsúpa (fyrir 3-4)
- 1/2 laukur
- 4-5 gulrætur, skornar í bita
- 400 g plómutómatar í dós
- 2 msk tómatpúrra
- 2 hvítlauksrif
- 2 tsk grænmetiskrafturkraftur
- 4 dl vatn
- 1-2 dl vatn (meira vatn)
- 1 ½ dl rjómi
- salt og pipar
- cayennepipar
Toppa með:
- Ólífuolíu
- ferskri basilíku
- ferskum mozzarella
Aðferð:
- Steikið lauk upp úr ólífuolíu. Bætið svo gulrótum og hvítlauk saman við.
- Hellið tómötum úr dós ásamt öllum safanum ofan í, tómatpúrru, 4 dl vatni og grænmetiskrafti. Hrærið og látið malla saman í 30-40 mínútur á vægum hita.
- Blandið öllu vel saman með töfrasprota. Þá er súpan orðin vel þykk. Þynnið súpuna með 1-2 dl vatni og rjóma. Kryddið með cayenne, salti og pipar.
- Berið fram með ólífuolíu, ferskri basilíku og ferskum mozzarella.
Ólífuolía með basilíku
- Blandið saman með töfrasprota ólífuolíu, basilíku og smá salti. Hver og einn dreifir svo yfir sína súpuskál þegar þið berið hana fram.
mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir