Þú vilt borða hollt og gott – en á sama tíma ertu að berjast við hungrið seinnipart dags og á kvöldin. Hér eru tuttugu matvæli sem eru holl og sefa hungrið.
- Hnetur innihalda holla fitu og hjálpa til við að halda kólesterólgildum niðri, en innihalda á sama tíma mikið af trefjum sem tekur langan tíma að melta.
- Haframjöl inniheldur líka mikið af trefjum, líkt og hnetur. Og mettar vel.
- Epli eru vatnskenndur ávöxtur sem fær magann til að virðast saddur. Trefjarnar í eplunum fá tilfinninguna til að endast lengur.
- Kryddin chili og cayennepipar fá þig til að borða minna og brenna meira – á sama tíma.
- Mynta hefur ekki bara róandi áhrif ef þú lyktar af henni heldur bælir hún líka matarlystina.
- Avókadó er pakkað af ómettuðum fitusýrum sem „fylla magann“. Skerðu niður avókadó og settu á rúgbrauðið þitt – það mun án efa bæla matarlystina.
- Edamamebaunir finnurðu oft í tengslum við sushi. Þær innihalda ekki mikið af kaloríum en þónokkuð af próteinum – og prótein mettar.
- Kál inniheldur einnig mikið af trefjum og léttir á hungurtilfinningu á milli máltíða.
- Hörfræ eru hlaðin hollustu, omega 3- og omega 6-fitusýrum ásamt miklu af trefjum.
- Chiafræ innihalda í stórum dráttum sömu góðu olíurnar og trefjar og hörfræ. Sumir halda því þó fram að chiafræ bólgni út í maganum þegar þú drekkur vatn á sama tíma og metti því betur.
- Egg eru mettandi! Rannsóknir hafa sýnt fram á að egg geta haldið hungri í skefjum í allt að 36 klukkustundir.
- Jógúrt inniheldur mikið af mettandi próteinum.
- Kaffi á að létta á hungurtilfinningunni, þótt um skammvinna lausn sé að ræða.
- Sítróna er súr – og þetta súra bragð fær þig til að finnast þú vera mettur. Sprautaðu nóg af sítrónu næst yfir salatið eða fiskréttinn.
- Edik getur hægt á meltingunni og hjálpar þér að vera saddur til lengri tíma. Að auki er það fullt af góðum vítamínum og heldur blóðsykrinum í lagi. Sumir drekka eplaedik daglega sér til heilsubótar.
- Súpa er tilvalinn forréttur, og fær þig til að borða minna af aðeins feitari mat sem fylgir á eftir súpunni.
- Vatn er hollt og við eigum að drekka nóg af því. Það kemur ekki í stað máltíðar en gott er að byrja allar máltíðir á að drekka fullt glas af vatni.
- Baunir innihalda ekki mikið af kaloríum en eru ríkar að próteinum og trefjum. Þess vegna eru þær frábærar með öllum mat.
- Grænt te er eins og vatnið – hjálpar þér að fylla magann.
- Lax er ríkur að próteinum og omega 3-fitusýrum, sem eykur tilfinninguna um að maginn sé saddur.