Hér býður Hildur Rut okkur upp á trylltar og fylltar krönsí kjúklingabringur, með linsubaunasnakki og kartöflum. Sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana.
Fylltar krönsí kjúklingabringur með chili og sítrónu (fyrir 3)
- 3 kjúklingabringur
- 6 dl Eat real lentil chips chili & lemon
- 1 egg
- 1 dl spelt
- Salt & pipar
- Pam sprey
Fylling
- ½ Philadelphia-rjómaostur
- 1 msk. safi úr sítrónu
- 1-2 msk. steinselja
- Hvítlauksrif
- Salt og pipar
Kartöflur
- 10 kartöflur
- ½ dl ólífuolía
- 1-2 msk. ferskt timjan (má vera þurrkað)
- 1-2 msk. fersk steinselja
- Salt & pipar
Sósa
- 1 dl Heinz-majónes
- 1 dl sýrður rjómi
- ½ tsk. hunang
- Lítið hvítlauksrif, pressað
- 1 msk. fersk steinselja, smátt söxuð
- 2 msk. rifinn parmigiano reggiano
Aðferð:
- Byrjið á því að útbúa fyllinguna. Hrærið saman rjómaost, sítrónusafa, steinselju, hvítlauksrif, salt og pipar.
- Dreifið snakkinu á disk, speltinu á annan disk og pískið eggið í skál.
- Snyrtið kjúklingabringurnar og skerið gat í miðjuna á þeim þannig að úr verði vasi.
- Fyllið bringurnar með rjómaostafyllingunni (gott að nota skeið).
- Setjið snakkið í poka og rúllið yfir með kökukefli svo það verði að mulningi.
- Veltið bringunum varlega upp úr speltinu (passið að fyllingin leki ekki út), egginu og síðan snakkinu.
- Spreyið kjúklinginn með Pam-spreyi og bakið í ca. 40 mínútur við 190°C í eldföstu formi þöktu bökunarpappír
- Skerið kartöflurnar í báta og veltið þeim upp úr ólífuolíu og kryddinu. Bakið í 30-40 mínútur við 190°C. Veltið þeim reglulega.
- Á meðan kjúklingurinn og kartöflurnar eru í ofninum að bakast er kjörið að útbúa sósuna! Blandið öllu hráefninu saman með skeið.
- Mjög gott að bera réttinn fram með fersku salati.
mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir