Besti kjúklingaréttur sem læknirinn hefur bragðað

Ragnar Freyr Ingvarsson.
Ragnar Freyr Ingvarsson. Eggert Jóhannesson

Þegar Ragnar Freyr Ingvarsson segir að hann hafi eldað kjúklingarétt sem hafi verið besti kjúklingaréttur sem hann hafi bragðað, þá vitum við að þetta er uppskrift sem lífsnauðsynlegt er að prófa.

„Ég hafði ekki heyrt um þennan rétt fyrr en að Snædís, eiginkona mín, kom heim með hann frá veitingahúsinu Bombay Bazar í Ármúlanum. Ég varð hreinlega orðlaus - þetta var sennilega besti kjúklingaréttur sem ég hafði bragðað. Og ég hef pantað hann nokkrum sinnum síðan - ótrúlega seðjandi og bragðmikill réttur."

„Og ég var eiginlega undrandi á að hafa ekki kynnst honum áður. Svo góður er hann! Þessi réttur á sér ekki langa sögu. Hann varð til á Buhari Hótelinu í Chennai á Indlandi. Kokkurinn - herra Buhari, bjó til þennan rétt fyrir gesti hótelsins. Nafnið á réttinum hefur vakið nokkra athygli - og verið innblástur í ýmsar sögusagnir um tilurð réttsins - að hann innihaldi 65 mismunandi krydd, að hann hafi verið búinn til fyrir indverska herdeild. En svo er ekki raunin. Herra Buhari bar þennan rétt fyrst fram árið 1965. Og þannig fékk hann nafn sitt - eftir fæðingarárinu!" segir Ragnar Freyr um réttinn sem er hér með orðið skyldusmakk.

Ljósmynd/Ragnar Freyr Ingvarsson

Einn dásamlegasti kjúklingaréttur allra tíma - Kjúklingur sextíuogfimm (Chicken Sixty-five)

Þetta er ekki flókin eldamennska - en hún er nokkuð tímafrek og er í allavega þremur stigum. Fyrst marinering, svo djúpsteiking og svo er kjúklingurinn steiktur aftur í sósunni.

Hráefnalisti fyrir 6

  • 1,4 kg úrbeinuð kjúklingalæri
  • 1/2 dós grísk jógúrt
  • safi úr tveimur sítrónum
  • 2 egg
  • 3 msk. túrmerik
  • 3 msk. garam masala
  • 3 msk. papríkuduft
  • 2 msk. chiliduft
  • 1 msk. chiliflögur
  • 2 msk. svartur pipar
  • 1 bolli maísmjöl
  • 6 msk. hvítlauks- og engifermauk
  • 50 ml rauðsófusafi (ég fékk hann með því að stappa vökvann úr nokkrum forsoðnum rauðrófum)
  • salt
  • 2 l sólblómaolía til að djúpsteikja

Fyrir sósuna

  • 1/2 dós grísk jógúrt
  • 50 ml rauðrófusafi
  • 5 msk. tómatsósa
  • 2 msk. sæt chilisósa
  • 2 msk. siracha sósa
  • salt og pipar
  • 1 græn chili
  • 10-15 karrílauf
  • 1 msk. hvítlauks- og engifermauk

Meðlæti

  • Basmati hrísgrjón
  • Einfalt mangósalat (gleymdi að taka mynd af því)

Aðferð:

  1. Byrjaði á því að skera kjúklingalærin í sex nokkuð álíka stóra bita. Setti í skál og bætti svo jógúrt, eggjum, maísmjöli, engifer- og hvítlauksmauki, rauðrófusafa og öllu kryddinu saman í skálina. Saltaði. .
  2. Þá er að blanda öllum þessum hráefnum vandlega saman og leyfa að marinerast í að minnsta kosti 30 mínútur - meiri tími er auðvitað betri - sumar uppskriftir sem ég rakst vildu stungu upp á að hafa þetta yfir nótt, þannig að ég ákvað að fara milliveginn, tæplega þrjár klukkustundir.
  3. Þá var ekkert annað að gera en að hita olíu upp í 160 gráður og djúpsteikja nokkra bita í senn og leggja þá svo til hliðar þegar þeir voru orðnir fallegir á litinn og eldaðir í gegn. Það tók ekki nema nokkrar mínútur að steikja kjúklingin í gegn.
  4. Það er mikilvægt að gera nóg af kjúklingi - þar sem fólk á eftir að borða yfir sig af þessu ljúfmeti.
  5. Þegar kjúklingurinn var tilbúinn fór ég að huga að sósunni. Blandaði saman jógúrtinni, tómatsósunni, siracha og sætri chilisósu saman í skál.
  6. Saxaði svo niður einn grænan chili. Hitaði olíu á pönnu og steikti eldpiparinn með hvítlauks- og engifermauki og karrílaufunum.
  7. Hitaði sósuna upp á pönnunni og blandaði vel saman við hráefnin.
  8. Lokaskrefið var að færa kjúklinginn í sósuna og blanda varlega þannig að hann varð alveg hjúpaður. Steikja svo saman í nokkrar mínútur. Skreytti með kóríander.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert