Vinsæli brúsaframleiðandinn 24Bottles hefur komið með nýja viðbót í vöruúrvalið sitt sem er algjört æði.
Fyrirtækið hefur í áranna rás hannað og framleitt brúsa sem halda bæði köldum og heitum drykkjum í marga tíma. Þeir vildu útfæra hugmyndina af brúsunum lengra og kynna nú Fill & Go Lid – eða nýtt lok á Travel Tumbler vöruna þeirra. Nú getur þú tekið með þér súpu eða annan mat á ferðina.
Travel Tumbler var sem sagt, upphaflega hugsað sem drykkjarílát og með tilkomu á þessu nýju loki, þá eru engin takmörk fyrir hvaða mat þú getur tekið með þér til vinnu eða skóla sem nesti. Heitur matur eða jógúrtskál með möndlum og ávöxtum, þá er Fill & Go lokið fullkomlega lekaþétt ílát. Eins er það með hitaþolnu gripi og áföstu bandi sem auðveldar þér að halda á ílátinu.