Það er Ostóber um þessar mundir og af því tilefni fá girnilegar ostauppskriftir að gera allt vitlaust þennan mánuðinn. Hér erum við með bakaðan Dala-Auð sem ætti að æra óstöðuga og ekki spilla ótrúlega fallegar myndir Berglindar Hreiðars á Gotteri.is fyrir en hún á einmitt heiðurinn af uppskriftinni.
Bakaður ostur með grilluðum paprikum og pestó
- 1 x Dala-Auður
- 3 msk. Sacla-pestó með „Roasted pepper“
- Sacla Peperoni grigliati (grillaðar paprikur í olíu)
- furuhnetur
- fersk basilíka
Meðlæti: Baguette, kex, hnetur, hráskinka, vínber eða annað sem ykkur dettur í hug.
Aðferð:
- Takið ostinn úr umbúðunum og leggið í eldfast mót eða á bökunarpappír.
- Setjið vel af pestó ofan á hann, skerið grillaðar paprikur niður og setjið þar næst ásamt furuhnetum.
- Bakið við 190°C í um 10 mínútur.
- Stráið smá ferskri basilíku yfir og berið fram með góðu brauði, kexi og öðru meðlæti.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir