Hér er dásemdarkjúklingasalat frá Berglindi Hreiðars á Gotteri.is sem hún segir innblásið frá veitingastaðnum Vegamótum á Bíldudal.
„Í sumar á ferðalagi okkar um Vestfirðina heimsóttum við veitingastaðinn Vegamót á Bíldudal. Þar fékk ég dásamlegt kjúklingasalat í hádeginu sem ég gat ekki hætt að hugsa um. Ég mundi svona sirka hvað var í því, skoðaði myndina mína og matseðilinn hjá þeim vel og vandlega og ákvað að reyna að herma þetta eftir.“
Kjúklingasalat a la Vegamót
Fyrir 3-4
Kjúklingasalat
- 4 kjúklingabringur
- icebergsalat
- tómatar
- mangó
- mangó-chilisósa (sjá uppskrift hér að neðan)
- 5 msk. Hellmann's-majónes
- 4 tsk. grænt pestó
- Til hamingju-chilijarðhnetur
- salt og pipar eftir smekk
- ólífuolía til steikingar
Aðferð:
- Útbúið mangó-chilisósuna og geymið fram að notkun (þetta mætti þess vegna gera daginn áður en allt í lagi bara rétt áður en þið hefjist handa við eldamennskuna líka).
- Berjið kjúklingabringurnar niður til að þynna þær vel, steikið upp úr ólífuolíu stutta stund á hvorri hlið. Saltið og piprið eftir smekk og setjið í 180°C heitan ofn í um 10 mínútur til viðbótar. Útbúið salatið á meðan.
- Skerið niður iceberg, tómata og mangó og raðið á fat/í skál.
- Hrærið saman majónes og pestó, setjið í lítinn poka og klippið gat á endann, geymið.
- Saxið chilijarðhnetur og geymið.
- Þegar kjúklingurinn er tilbúinn má setja vel af mangósósu yfir hvern bita, skera hann niður og raða á fatið, næst má setja smá pestómajónes yfir til skrauts og að lokum strá vel af söxuðum chilihnetum yfir allt.
- Gott er að hafa afganginn af mangósósu, pestómajónesi og chilihnetum í skálum til að hver og einn geti skammtað sér að vild með salatinu.
Mangó-chilisósa
- 2 x þroskað og mjúkt mangó
- 2 rauð chili (fræhreinsuð)
- 1 gul paprika
- 100 ml vatn
- 100 ml edik
- 150 g sykur
- 2 cm rifin engiferrót
- 2 rifin hvítlauksrif
- ¼ tsk. salt
Aðferð:
- Skerið mangó, chili og papriku smátt og setjið ásamt öllum öðrum hráefnum í pott.
- Hitið að suðu og leyfið síðan að malla í um 20 mínútur.
- Takið af hitanum og maukið með töfrasprota, leyfið að kólna niður fram að notkun.
- Hægt er að setja í krukku, loka vel og geyma í kæli.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir