Ef einhver er góður í pítsugerð, þá er það Snorri Guðmunds hjá Mat og myndum. Hér býður hann okkur upp á súrdeigspítsu með ítalskri salsiccia, rósmaríni og chilihunangi. Nammi!
Súrdeigspítsa að hætti Snorra (fyrir 4)
- súrdeigspítsudeig, 2x 300 g / t.d. frá Brikk-bakaríi
- salsicci-grillpylsa, 200 g / fæst frosin frá Tariello í Hagkaup, Krónunni og Melabúðinni
- pítsusósa, 200 ml
- mozzarella rifinn, 250 g
- rauðlaukur, 1 lítill
- rósmarín ferskt, 1 stilkur
- klettasalat, 25 g
- parmesan, eftir smekk
Chilihunang - eftir smekk
- hunang, 150 ml
- rautt chili, 15 g
- hvítlaukur, 1/2 lítið rif
Aðferð:
- Takið pítsudeigið úr kæli 2 klst fyrir eldun.
- Skerið utan af salsiccia-pylsunum og losið kjötið í sundur. Steikið á heitri pönnu þar til fulleldað. Geymið á disk til hliðar
- Stillið ofninn á hæsta hita (á pítsustillingu ef það er í boði).
- Sneiðið rauðlauk í þunnar sneiðar eftir smekk. Saxið rósmarín gróflega.
- Setjið bökunarplötu inn í ofn svo hún hitni vel á meðan unnið er í botninum. Hafið bökunarpappír kláran til að leggja deigið á.
- Setjið smá hveiti á hendurnar og notið þær til þess að fletja botninn út í um 28 cm hring. Best er að vinna út frá miðju deigsins í átt að kantinum og reyna að hlífa um 2 cm af kantinum við sem mestu hnjaski. Þannig er gasinu í deiginu ýtt út í kantinn sem verður til þess að hann lyftist betur.
- Raðið sósu, salsiccia, osti, rósmaríni og rauðlauk á pítsuna.
- Takið heita ofnplötuna úr ofninum (farið varlega) og dragið pítsuna á ofnpappírnum á heita plötuna. Bakið í neðstu grind í ofni í 12-15 mín eða þar til pítsan er orðin fallega gyllt.
- Toppið pítsuna með klettasalati, rifnum parmesan og chilihunangi eftir smekk.
Chilihunang
- Sneiðið chili í þunnar sneiðar og pressið eða rífið hvítlaukinn.
- Setjið allt hráefnið saman í lítinn pott og stillið á miðlungshita.
- Hrærið við og við í blöndunni þar til hunangið er við það að fara að sjóða og lækkið þá hitann í lægstu stillingu og látið vera í um 20 mín.
- Látið kólna í nokkrar mín. og færið hunangið svo yfir í flösku eða krukku.
- Geymið við stofuhita í tvær vikur eða í ísskáp í allt að mánuð en takið þá úr kæli og látið ná stofuhita fyrir notkun.