Viður hefur lengi verið notaður til að skapa stemningu í eldhúsum, en arkitektar og hönnuðir taka skrefið lengra til að nýta efnið líka í heildarrýminu – eldhúsi og samliggjandi stofum. Hér má sjá nokkur slík eldhús og takið eftir hvað efnisvalið er einfalt, og oftar en ekki er marmara blandað saman við eða viðurinn jafnvel gerður svartur eða grænn.
Hér er gylltur litur í höldum og á hillunum til að undirstrika hlýjuna í innréttingunni.
mbl.is/dezeen.com
Marmari og viður eru falleg blanda.
mbl.is/dezeen.com
Svartur viður er ofboðslega fallegur í þessari innréttingu.
mbl.is/dezeen.com
Þetta eldhús einkennist af formum og frumleika.
mbl.is/dezeen.com
Ekki oft sem maður sér grænan við í eldhúsum - en það kemur sannarlega vel út.
mbl.is/dezeen.com