Þetta er engin lygasaga! Það eru til djúpsteiktir spaghettíhamborgarar þarna úti sem fólk sækir í af miklum áhuga.
Veitingastaðurinn Honest Burgers í London hefur gefið út djúpsteiktan spaghettíborgara í samvinnu við pastastaðinn Pastaio. Hamborgaranum fylgir hunangs-mæjó og reyktur mozzarellaostur sem þykir einstaklega ljúffengt með borgaranum. Djúpsteikta spaghettíið er sett á hann í lokin og setur punktinn yfir i-ið.
Spaghettíið er glútenfrítt og er í fyrstu soðið, því næst kælt og svo djúpsteikt. Eftir það er það sett á milli, hjá mozzarellaostinum og mæjónesinu. Og þeir sem hafa smakkað segja bragðið engu líkt – spaghettíið sé stökkt og geri borgarann sérstakan. Nokkrir ítalskir pastaaðdáendur þarna úti hafa gefið borgaranum fullt hús stiga, en djúpsteikt pasta er þekkt víðsvegar um Ítalíu.