Fjölskylduvænn pastaréttur með ostasósu

Ljósmynd/Gunnar Sverrisson

Þessi ómótstæðilega pastauppskrift tikkar í flest box. Brokkólíið leikur hér stórt hlutverk í bland við ostasósu en þessi tvenna er algjörlega upp á tíu. Það er Halla Bára Gestsdóttir á Home & delicious sem á heiðurinn af þessari uppskrift sem hún segir að henti öllum aldurshópum.

„Hér sameinast tvennt sem gerir góðan pastarétt. Annars vegar vel matreitt brokkolí og hins vegar ostasósa. Þessi pastaréttur getur vel hentað öllum aldurshópum og er hugsaður sem slíkur.“

Fjölskylduvænn pastaréttur með ostasósu

Fyrir fjóra

  • 400 g spagettí
  • 1 stk. brokkolíhaus, meðalstór
  • 2 stk. hvítlauksrif, smátt söxuð
  • 2 msk. ólífuolía
  • 1⁄2 tsk. chiliflögur, má sleppa
  • 2 dl vatn
  • 3 msk. rifinn Goðdala-Feykir
  • salt og svartur pipar

Ostasósa:

  • 75 g smjör
  • 2 1⁄2 dl rjómi frá Gott í matinn
  • 300 g Óðals sterkur Gouda, rifinn
  • 1 dl pastasoð
  • salt og svartur pipar

Pasta

  1. Sjóðið spagettí skv. leiðbeiningum. Skerið brokkolí niður í blóm og svo aftur langsum, þannig að þau verði ekki of stór og taki langan tíma í eldun.
  2. Hitið olíu í djúpri pönnu eða lágum potti. Látið hana ná meðalhita. Mýkið hvítlauk á pönnu í tvær mínútur og stráið chiliflögum yfir.
  3. Setjið brokkolí á pönnuna, saltið og piprið. Hellið vatni á pönnuna til að steikingin detti niður. Setjið lok yfir hana og látið malla á lágum hita í tíu mínútur. Takið lokið þá af og látið malla áfram í tvær mínútur.
  4. Takið úr pottinum og setjið á bretti. Skerið brokkolíblönduna smærra niður, kreistið sítrónu yfir og stráið parmesanosti þá yfir.
  5. Látið renna af spagettíinu en geymið smá pastasoð (ekki hella öllu soðinu niður).

Ostasósa

  1. Bræðið helming af smjöri í potti á vægum hita, bætið við rjóma og helmingi af osti. Haldið heitu.
  2. Setjið spagettíið aftur í pottinn, hrærið afganginn af smjörinu og ostinum saman við það. Þegar það þekur spagettíið vel skuluð þið blanda heitri ostasósunni saman við ásamt pastasoði. Ef ykkur þykir sósan nægja getið þið sleppt soðinu.*
  3. Látið brokkolíblönduna út í spagettíið í smá skömmtum og hrærið gróflega, svo hún maukist ekki of mikið. Berið réttinn fram strax.
Gott ráð: Það er alltaf sniðugt að geyma smá pastasoð þegar verið er að elda pasta sem fær á sig sósu af ýmsu tagi. Ef sósan er ekki næg og rétturinn of þurr bjargar soðið alltaf málunum. Eins er gott að hella soði saman við afgang, ef einhver er, og blanda vel því þá verður maturinn betri daginn eftir þegar á að hita hann upp.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert