„Þetta er skemmtileg útgáfa af hinum klassíska rétti en rauðvínið í sósunni skilar sér með kröftugu og dýpra bragði af sósunni. Annars er þetta afskaplega einfaldur réttur sem allir eiga að geta leikið sér að að galdra fram í eldhúsinu,“ segir Linda Ben um þessa uppskrift sem við hvetjum ykkur til að prófa.
Rauðvíns-spaghetti bolognese
- 250 g spagettí
- 500 g nautahakk
- ólífuolía
- 1 laukur
- 1 gulrót
- 2-3 hvítlauksgeirar
- 650 ml pastasósa
- 1 msk. ítölsk kryddblanda (óreganó, timían, basil)
- 1/8 tsk. þurrkað chili
- 1 dl rauðvín
- salt og pipar
- parmesan
- ferskt basil
Aðferð:
- Sjóðið spagettí samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
- Skerið lauk og gulrót niður og steikið á pönnu upp úr ólífuolíu.
- Bætið nautahakki út á pönnuna og steikið það í gegn.
- Skerið hvítlauk eða pressið í gegnum hvítlaukspressu og steikið létt, bætið svo pastasósunni út á. Kryddið til með ítalskri kryddblöndu, chili. Bætið rauðvíninu út á og blandið saman, kryddið með salti og pipar og smakkið til. Látið suðuna koma upp og leyfið að malla rólega í 4-5 mín. Bætið spagettíinu út á og blandið saman.
- Berið fram með parmesan og fersku basil.