Það er engin önnur en Helena Gunnarsdóttir sem á þessa uppskrift sem er sneisafull af osti og öðru gúmmelaði. Uppskrift sem þið eiginlega verðið að prófa enda passar hún einstaklega vel þegar ykkur langar í bragðgóða og seðjandi sælkerauppskrift í kvöldmat.
„Ég er mjög spennt að deila með ykkur þessari uppskrift sem sló í gegn á heimilinu. Sterk og bragðmikil tómatsósan smellpassar við kjötbollurnar og silkimjúkan rjómaostinn. Frábært að bera fram með ristuðu súrdeigsbrauði eða pasta,“ segir Helena um uppskriftina.
Kjötbollur með chilitómatsósu og rjómaosti
Kjötbollur:
- 2 dl brauðraspur
- 1 dl mjólk
- 600 g hreint nautahakk
- 2 dl rifinn parmesan eða Goðdala-Feykir
- 1 msk. þurrkuð eða fersk steinselja
- 2 stk. pressuð hvítlauksrif
- 2 tsk. sjávarsalt
- 1 tsk. svartur nýmalaður pipar
- 1 stk. egg
Sósa:
- 2 msk. smjör
- 1 stk. rauðlaukur, smátt saxaður
- 2 stk. hvítlauksrif, smátt söxuð
- 1⁄2 tsk. þurrkaðar chiliflögur (meira eða minna eftir hversu sterka sósu þið viljið)
- 1 tsk. garam masala-kryddblanda
- 1 tsk. paprikukrydd
- 2 dósir hakkaðir tómatar
- 1 tsk. tómatpaste
- 1 tsk. sykur eða önnur sæta
- 150 g hreinn rjómaostur frá Gott í matinn salt og pipar
Aðferð.
- Ofn hitaður í 200 gráður með blæstri.
- Mjólkinni hellt yfir brauðmolana og látið standa í 5 mínútur.
- Öllu blandað vel saman. Ég set allt í hrærivél og blanda þannig saman.
- Bollur á stærð við golfkúlur mótaðar úr hakkinu.
- Bollurnar bakaðar í ofni í 20 mínútur eða þar til vel brúnaðar og eldaðar í gegn.
- Á meðan bollurnar bakast er sósan gerð.
- Laukur, hvítlaukur og chiliflögur steikt upp úr smjöri.
- Kryddað með garam masala og paprikukryddi og steikt aðeins.
- Tómötum og tómatpaste hellt út á og suða látin koma upp.
- Smakkað til með salti og pipar og sætu.
- Skref 3
- Ofninn stilltur á grill.
- Kjötbollur settar út í sósuna og doppur af rjómaosti settar inn á milli.
- Smá parmesanostur rifinn yfir.
- Sett undir grillið í ofninum og bakað þar til osturinn bakast og verður gullinn.