Kannastu við að flíkin komi krumpuð og teygð úr þvotti? Þá eru þetta ráðin til að ná henni aftur í rétta stærð.
Það hefur komið fyrir okkur öll að þvo uppáhaldspeysuna okkar á vitlausu prógrammi og hún hefur minnkað niður í hálfa stærð. En ekki örvænta, því með þessu snjalla ráði getur þú leiðrétt mistökin á tíu mínútum.
- Settu hárnæringu saman við heitt vatn og láttu flíkina liggja í fimm mínútur. Passaðu samt að vatnið sé ekki of heitt.
- Settu flíkina á handklæði og rúllaðu handklæðinu upp til að flíkin þorni auðveldlega. Rúllaðu handklæðinu út eftir nokkrar mínútur og leggðu flíkina á þurrt handklæði.
- Teygðu nú á flíkinni þar til hún nær upprunalegri stærð og leyfðu henni að þorna.