Pastarétturinn sem krakkarnir elska

Ljósmynd/María Gomez

Einu sinni var veitingastaður á Húsavík sem bauð meðal annars upp á kolkrabbapylsur – ungum viðskiptavinum til mikillar ánægju. Kolkrabbapylsur eru nefnilega algjör snilld og gera matinn að algjörri ævintýrastund... svo eru pylsur svo góðar.

Þessi uppskrift kemur frá Maríu Gomez á Paz.is en hún segir hana afar einfalda og að krakkarnir elski hana.

„Í hana þarf heldur ekki óteljandi hráefni, svo ég mæli með að þið prufið hvort sem er hversdags eða í krakkapartýi sem dæmi. Það er lítið mál að skera pylsurnar í kolkrabbalíki og krökkunum finnst það afar skemmtileg framsetning, auk þess að bitarnir verða smá meira djúsí. Nú og ef ekki þá má bara vel skera pylsurnar niður í þunnar skífur og bera fram þannig. Ég mæli samt með að ef þið eruð með mjög ung börn að skera pylsurnar niður í smærri bita,“ segir María um réttinn.

Krakkapasta með kolkrabbapylsum

  • 350 gr. De Cecco-pastaslaufur (fyrir suðu)
  • 1 pakki af mini partýpylsum
  • 1 askja skinkumyrja
  • 1 askja hreinn Phildadelphia-ostur Original
  • 1 dl nýmjólk
  • 1 lítill haus brokkólí
  • 150 gr. smátt skornir sveppir
  • 25 gr. smjör
  • 1/2 tsk. fínt borðsalt
  • 1 tsk. gróft malaður svartur pipar

Aðferð

  1. Byrjið á að sjóða pastað með því að setja vatn í pott sem er nógu mikið til að rétt fljóta yfir pastað. Saltið vatnið það vel að það líkist sjóvatni og látið suðuna koma upp áður en pastað er sett ofan í.
  2. Sjóðið pastað í þann tíma sem er gefið upp á pakkanum eða í 11-13 mín.
  3. Á meðan er gott að skera niður pylsurnar í annaðhvort litla bita eða kolkrabbba en það er gert með því að skera ræmur í annan endann upp að miðju.
  4. Steikið næst brokkólí og sveppi upp úr smjörinu og saltið ögn og piprið. Takið svo af pönnunni og leggið til hliðar.
  5. Steikið svo pylsurnar upp úr sama smjöri á sömu pönnu þar til að endarnir hafa glennst út og líkjast kolkrabbalöppum.
  6. Takið nú pylsurnar af og setjið til hliðar með sveppunun og brokkólíinu.
  7. Gerið nú sósuna með því að setja ostana og mjólkina á pönnuna og láta það bráðna vel saman, saltið með 1/2 tsk. af fínu borðsalti og 1 tsk. grófum svörtum pipar.
  8. Bætið nú pylsum og brokkóli í sósuna og hrærið vel saman.
  9. Gott að bera fram með hvítlauksbrauði og parmesan-osti.
Ljósmynd/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert