Vilhjálmur prins deildi nýverið uppskrift að klassískum ítölskum rétti sem hann eldaði til að heilla Kate Middleton upp úr skónum – og hún kolféll fyrir sósunni og prinsinum
Uppskriftin birtist í nýrri matreiðslubók sem gefin var út til góðgerðarmála. Bókin „A Taste Of Home“, inniheldur 120 rétti frá helstu matreiðslumönnum og öðrum frægum stórstjörnum Bretlands. Allt gert í tilefni að 40 ára afmælis góðgerðarsamtakanna The Passage, sem styðja heimilislausa.
Kate Middleton sagði í viðtali að heimagerða pastasósuna hans Vilhjálms væri að finna í bókinni, þá sömu og hann eldaði fyrir Kate á háskóladögum þeirra. Og við fengum uppskriftina!
Pastasósan sem fékk Kate Middleton til að falla fyrir prinsinum
- 1 msk. ólífuolía
- 30 g smjör
- 1 stór laukur, smátt saxaður
- 1 gulrót, skorin niður
- 2 sellerístilkar
- 350 g nautahakk
- 250 ml þurrt hvítvín
- 120 ml mjólk
- Múskat á hnífsoddi
- 400 g saxaðir tómatar í dós
- 1 tsk. tómatpúré
- 250 g spaghettí
- 50 g parmesan-ostur
- 2 msk. smátt söxuð steinselja
- Salt og pipar
Aðferð:
- Hitið olíu og smjör á pönnu og steikið laukinn á meðalhita. Bætið þá við gulrót og selleríi og látið malla áfram á pönnunni. Munið að hræra í.
- Notið gaffal til að hræra upp í hakkinu og bætið því á pönnuna. Steikið þar til hakkið er ekki lengur bleikt, samt ekki alveg gegnumsteikt.
- Hellið víninu út á pönnuna og eldið þar til það gufar upp. Lækkið þá í hitanum og hellið mjólkinni og múskatinu saman við. Látið mjólkina einnig „gufa“ upp.
- Setjið tómatana og púré út á pönnuna og kryddið eftir smekk með salti og pipar. Látið malla á pönnunni við vægan hita í þrjá klukkutíma – og hrærið í inn á milli.
- Sjóðið spaghettíið upp úr saltvatni, samkvæmt leiðbeiningum.
- Skiptið pastanu jafnt á milli í fjórar skálar og hellið heitri sósunni yfir.
- Dreifið steinselju yfir og berið fram með parmesan.
Vilhjálmur sinnar oftar en ekki góðgerðamálum.
Mbl.is/Aga Strzalek