Varð fyrir verulegum vonbrigðum með Quality Street

Stútfull dós af jólagóðgæti! Hvaða litur er þinn uppáhalds?
Stútfull dós af jólagóðgæti! Hvaða litur er þinn uppáhalds? mbl.is/Quality Street

Jólin byrja fyrir alvöru þegar við opnum stóru Quality Street-sælgætisdósina, og finnum súkkulaði-karamelluilminn taka á móti okkur. En það eru ekki allir sáttir fyrir þessi jólin með sína dós.

Maður nokkur að nafni Stephen Hull gerði úttekt á molunum sem hann fékk í dósinni fyrir þessi jólin og deildi niðurstöðunni á Twitter – en hann var allt annað en ánægður með niðurstöðurnar. Í dósinni voru einungis fjórir fjólubláir molar, ellefu appelsínugulir – en nóg af gulum og rauðum molum.

Fólk hafði sterkar skoðanir á málinu á Twitter og það er nokkuð ljóst að menn eiga sína uppáhaldsmola, sem þeir vilja að sjálfsögðu sjá mest af. Talsmaður Nestlé lét í sér heyra og sagðist skilja óánægjuna – en benti þá á að hægt væri að blanda sína eigin dós á vefsíðunni þeirra. Við greindum einmitt frá því hér á matarvefnum fyrr í vetur.

Molarnir sem Stephen fékk upp úr sinni dós.
Molarnir sem Stephen fékk upp úr sinni dós. mbl.is/Twitter_Stephenbhull
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert