Þegar við höfum raðað í okkur smákökum og jólasteikin er farin að setjast vel á hliðarnar er gott að grípa í ljúffenga uppskrift sem þessa – taco með humri, beikoni og hvítlauks- og steinseljusósu. Uppskriftin er frá Hildi Rut matarbloggara á Trendnet.
Besta máltíðin eftir jólasteikina (6-8 tacos)
- 330 g skelflettur humar frá Sælkerafiski (1 pakkning)
- 1 msk ólífuolía
- 4 msk steinselja, smátt söxuð
- 1 hvítlauksrif, pressað eða rifið
- salt & pipar
- chiliflögur
- 1 msk smjör
- 8-10 beikonsneiðar
- 6-8 Street taco frá Mission
- Philadelphia-rjómaostur eftir smekk
- 4-6 kokteiltómatar, smátt skornir
- 4-5 dl rauðkál
- granatepli eftir smekk
Sósa
- 4 msk Heinz-majónes
- 2 msk sýrður rjómi
- ½ hvítlauksrif, pressað eða rifið
- 3 msk steinselja, smátt skorin
- safi úr ½ sítrónu
- salt & pipar
Aðferð:
- Blandið saman í skál humri, ólífuolíu, steinselju, hvítlauk, chiliflögum, salti og pipar. Leyfið þessu að liggja saman á meðan þið undirbúið meðlætið.
- Skerið rauðkál og tómata smátt og fjarlægið fræin úr granateplinu.
- Útbúið sósuna. Hærið saman í skál majónesi, sýrðum rjóma, hvítlauk, steinselju, sítrónusafa, salti og pipar.
- Leggið beikonið á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið í 10-12 mínútur við 200°C eða þar til það er orðið vel stökkt. Skerið beikonið smátt.
- Steikið humarinn upp úr smjöri. Það tekur aðeins örfáar mínútur fyrir humarinn að eldast.
- Steikið tortillurnar upp úr smá olíu þar til þær verða örlítið stökkar. Tekur litla stund. Þið getið líka bakað þær í ofni en þá er gott að bera smá ólífuolíu á þær.
- Smyrjið tortillurnar með rjómaosti eftir smekk. Því næst raðið þið rauðkáli í botninn, tómötum, humri, beikoni, sósunni og dreifið granateplafræjunum yfir. Njótið!
Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir