Það þarf alls ekki að selja okkur þá hugmynd að sósur geri flestan mat betri – og nú er loksins komið gott úrval af sjóðheitum sósum hér á landi.
Sósukóngarnir spruttu hér upp á veraldarvefnum rétt fyrir jólin, og komu því sem skemmtileg viðbót inn í matarmenninguna á aðventunni. Þeir bjóða upp á úrval af sterkum sósum sem margar hverjar rífa í. Sumar hafa áður fengist hér á landi en aðrar eru nýjar á markaði.
Við heyrðum í Braga Hinriki Magnússyni sem stofnaði fyrirtækið ásamt sonum sínum tveimur, þeim Fannari Loga og Magnúsi Hinriki, sem stundar nám á matvælabraut í Menntaskólanum í Kópavogi – og því með puttana í pottunum öllum stundum. Bragi segir þá feðga hafa gaman af að smakka bragðgóðar sósur og ekki verra ef þær ögri bragðlaukunum. Hann segir jafnframt að þegar maður byrjar að borða mildu sósurnar komi ákveðinn fiðringur í mann sem fái mann til að vilja prófa sterkari sósur. „Maður lærir að þekkja og meta sósurnar betur eftir því sem maður smakkar meira á þeim. Rétt eins og með gott rauðvín,“ segir Bragi okkur.
Það eru mikil fræði á bak við góðar sósur, en Sósukóngarnir hafa reynt að velja sósur sem ættu að höfða til flestra og eru einstaklega bragðgóðar. Skyndibitastaðurinn Tasty er til að mynda með gott úrval af sósum sem fást hjá „kóngunum“ og þar er hægt að smakka sig áfram fyrir þá sem þora.
Á heimasíðu Sósukónganna má finna alls kyns fróðleik og uppskriftir hvernig nota megi sósurnar í matargerð. Sjálfur segist Bragi vera að prófa sig áfram með sósur í ommelettum á morgnana og það komi skemmtilega á óvart. Það er ákveðin menning í kringum heitar sósur og með hækkandi sól verður þetta án efa eitt það vinsælasta á grillmatseðlum sumarsins.
Þeir sem vilja kynna sér sósurnar nánar geta kíkt á heimasíðuna HÉR eða fylgst með Sósukóngunum á Instagram HÉR.