Bláberja-, lakkrís-, snúða-súr var að koma á markað – en nýi bjórinn er úr smiðju BÖL Brewing og þykir hreint út sagt stórkostlegur á bragðið. Þegar blanda sem þessi ratar í vínverslanir og veitingahús vitum við að bjórframleiðendur landsins eru með þeim flinkustu í heimi, svo ekki sé meira sagt.
BÖL Brewing var að senda frá sér nýja afurð sem kallast „Snúlli“ og er sá áttundi í röðinni frá brugghúsinu. Við náðum tali af Axel Paul Gunnarssyni, öðrum eiganda BÖL, en hann og Hlynur Árnason reka brugghúsið í sameiningu – þar sem ólíkir kraftar þeirra mætast í litríku bjórúrvali. En okkur leikur forvitni á að vita meira um þennan merkilega snúðabjór. „Hlynur bruggmeistari er mjög hrifinn af snúðunum frá Brauði & co. – hann er mikill snúðakarl. Hann langaði til að útfæra sinn uppáhaldssnúð í ölformi, en einhverjir bruggarar hérlendis hafa verið að setja snúða í bjór. Við ákváðum þó að búa til okkar eigin blöndu, eða bláberja-, lakkrís-, snúða-súr, sem hefur slegið í gegn hjá þeim sem hafa smakkað,“ segir Axel okkur.
Snúlli er 5,4% og inniheldur bunka af höfrum sem gefa bjórnum sannan bakkelsiskeim. Við fyrsta sopa kemur mjúkt bláberjabragð, en eftirkeimurinn breytist í saltlakkrís. Axel segir lakkrísinn vera hálfgerðan bassaleikara í bjórnum, hann spili sitt hlutverk þarna undir en sé ekki í aðalhlutverki.
Fram undan hjá BÖL eru fimm nýir bjórar, og von er á páskabjórnum „Kjaftæði“, eftir sirka þrjár vikur – frábært nafn að okkar mati. En þeir sem vilja gæða sér á Snúlla geta leitað í Vínbúðirnar sem og á Bjórland.is því hér er án efa bjór sem sannir sælkerar geta alls ekki látið framhjá sér fara. Fyrir þá sem vilja fylgjast með ævintýrum brugghússins, þá er BÖL að finna sem @bolbrewing á Facebook, Instagram, Twitter og Untappd.
- - -
Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita ...
Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl