Stórkostlega gott lamba-kebab

Ómótstæðilega gott lamba kebab, borið fram í vefjum.
Ómótstæðilega gott lamba kebab, borið fram í vefjum. Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Hér er á ferðinni hreint út sagt stórkostlega góður lamba-kebabréttur borinn fram í vefjum. Tilvalið að notast við afganga af helgarlærinu eða hryggnum. Uppskriftin kemur úr smiðju Hildar Rutar sem notaði lambainnralæri í réttinn og segir það vera mjög meyrt og gott.

Stórkostlega gott lamba-kebab

(fyrir 4 – ég mæli með 1-2 vefjum á mann, það fer eftir því hvað þið setjið mikið á þær)

  • 500-600 g lambainnralæri
  • 2 msk. ólífuolía
  • 2 msk. Ras el hanout + 1 msk. (fæst t.d. í Hagkaup)
  • salt og pipar
  • 1 lítill kúrbítur
  • 250 g sveppir
  • 1 lítill rauðlaukur
  • 1 stór pimento-paprika eða nokkrar litlar
  • 2 tómatar
  • 1-2 dl smátt skorin gúrka
  • cheddarostur eftir smekk
  • tortillur eftir smekk (ég notaði heilhveiti)

Sósa:

  • 1 dós sýrður rjómi
  • 1-2 msk. ferskt dill
  • ½ tsk. hvítlauksduft
  • ½ tsk. laukduft
  • ½ tsk. paprikuduft
  • cayennepipar eftir smekk
  • salt og pipar

Aðferð:

  1. Byrjið á því að skera kjötið í bita og setja í skál. Blandið 2 msk. af Ras el hanout- kryddblöndu, ólífuolíu, salti og pipar saman við.
  2. Skerið kúrbít, sveppi, papriku og rauðlauk í litla bita. Skerið tómata og gúrku smátt.
  3. Blandið öllum hráefnunum í sósuna saman í skál. Endilega smakkið ykkur til og kryddið eftir smekk.
  4. Steikið lambakjötið upp úr ólífuolíu á meðalháum hita. Takið til hliðar þegar það er orðið eldað í gegn.
  5. Steikið kúrbít, sveppi, papriku og rauðlauk á sömu pönnu upp úr ólífuolíu. Kryddið með 1 msk. af Ras el hanout, salti og pipar.
Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert